Ég heiti Örn Viðar Erlendsson og hef starfað sem grafískur hönnuður bæði sjálstætt og hjá öðrum auglýsingafyrirtækjum. Um mig og mína ævi er hægt að lesa undir linknum “um mig”. Ég ákavað strax að nota þennan vef sem sýnishorn af hönnun minni síðustu 15 árin. Þannig að hér hönnun fyrir fyrirtæki sem enn eru starfandi og fyrirtæki sem löngu eru horfinn af markaði.
Ég ætla ekki að hafa langan fyrirlestur um það hvað góð markaðsetning og vandað útlit fyrirtæksins skipti miklu máli til að ná góðum árangri. Ég býst við að hver sá sem fer í fyrirtækjarekstur viti það. Snjöll og sterk hugmynd í áhrifamikilli útfærslu getur margfaldað árangur í markaðsstarfi. Ég hef hannað auglýsingar, lógó (vörumerki), markpóst, umbúðir, umhverfismerkinga og annarra athyglisverðra prentgripa. Jafnvel innréttingar í verslanir og íbúðarhús.
Góði gestur, ekki ætla ég að hafa þetta lengra að sinni en njóttu síðunnar og endilega hafðu samband ef þú treystir mér fyrir þínum auglýsingamálum.
Með kveðju,